Kammerkór Norðurlands: Draugar, tröll og huldufólk!
Kammerkór Norðurlands heldur ferna tónleika á Norðurlandi dagana 29. og 30. mars. Að þessu sinni er efnisskráin sótt í þjóðarfylgju Íslendinga: Hjátrú. Lög verða sungin við kvæði um huldufólk og meinvættir; ókindur og nátttröll öðlast líf, álfkonur seiða lifendur í hamarinn, afturgöngur kveða á glugg, Myrkárdjákni þeysir á Faxa, þari blakir um sjókalin kúpubein....
Kammerkór Norðurlands hefur mörg síðustu ár sérhæft sig í íslenskri kórtónlist, gamalli og nýrri, og hlotið einróma lof fyrir flutning sinn. Allmikið efni hefur verið samið sérstaklega fyrir kórinn, og það er ánægjuefni að bjóða nú upp á frumflutning á þremur lögum eftir Lisu McMaster, sem sungið hefur með kórnum síðastliðin ár.
Dagskrá:
Laugardagur 29.03.
- Ólafsfjarðarkirkja kl. 12
- Sauðárkrókur (Frímúrarasalur) kl. 17
Sunnudagur 30.03.
- Akureyrarkirkja kl. 17
- Þorgeirskirkja kl. 20
Stjórnandi er Eyþór Ingi Jónsson. Aðgangseyrir 2000 kr. (ekki tekið við greiðslukortum).
/Fréttatilkynning