Kanna á áhuga foreldra á breytilegri sumarlokun

Foreldrar á Skagaströnd hafa óskað eftir því að sumarlokun leikskólans verði með breytilegum hætti þannig að hann komi ekki á sama tíma sumars ár hvert. Á fundi fræðslunefndar Skagastrandar var málið tekið fyrir og ákveðið að kanna almennan áhuga foreldra fyrir slíkri breytingu.

Þá hefur leikskólastjóri fengið fyrirspurn um breytingu á dvalartíma sem væri þá hafður meira sveigjanlegur þannig að hægt sé að láta börn mæta í dvöl á mismunandi tímum. Var tekin ákvörðun um að skoða hvaða áhrif slík breyting hefði á leikskólastarfið og þá sérstaklega starfsmannahaldið.

Þá hefur verið óskað eftir því að þeir foreldrar sem eiga erfitt með að sækja börn sín kl 16 eigi möguleika á að greiða aukagjald fyrir 15 mín. framlengingu á dvalartímanum.

Þá óskaði leikskólastjóri á fundi með fræðslunefnd eindregið eftir einum starfsdegi í viðbót en þeir eru nú þrír yfir árið.

Fleiri fréttir