Kántrýbær kominn á sölu

Veitingastaðurinn Kántrýbær á Skagaströnd er til sölu en eigendur staðarins, Gunnar Halldórsson og Svenný Hallbjörnsdóttir, ætla að selja reksturinn fyrst um sinn og leigja út húsið. Sala á húsinu verður síðan skoðað í framhaldinu. „Okkur hjónunum langar að breyta til. Við erum búin að reka þetta í ansi mörg ár,“ segir Gunnar í samtali við Mbl.is

Samkvæmt Gunnari hefur reksturinn gengið ágætlega. Góður gangur var í sölunni í sumar og hefur Kántrýbær séð skólakrökkum á Skagaströnd fyrir mat. Nokkrir hafa sýnt staðnum áhuga að sögn Gunnars en engin formleg tilboð borist ennþá.

Fleiri fréttir