Kántrýsetrið opnar á laugardaginn
Húni segir frá því að Kántrýsetrið á Skagaströnd verður formlega opnað á laugardaginn. Þar verður ævintýraleg og óvenjuleg saga Hallbjörns Hjartarsonar til sýnis, allt frá fæðingu fram á þennan dag. Af því tilefni hefur tónlistarmaðurinn Magnús Kjartansson búið til heiðurshljómsveit Hallbjörns Hjartarsonar með söngvarana Björgvin Halldórsson, Selmu Björnsdóttur og Heiðu Ólafsdóttur í fararbroddi. Hljómsveitin mun halda tónleika í Kántrýbæ og slá svo upp sannkölluðu kántrýballi að hætti kúreka norðursins.
Hugmyndin um Kántrýsetur er ekki ný af nálinni en er nú loks að verða að veruleika. Það eru núverandi rekstraraðilar Kántríbæjar, þau Gunnar Sveinn Halldórsson og Svenny H. Hallbjörnsdóttir (Hjartarsonar) sem standa að setrinu með stuðningi Menningarráðs Norðurlands vestra og Minningarsjóðs um hjónin frá Vindhæli og Garði, sveitarfélagsins Skagastrandar og Iðnaðarráðneytis. Umsjón með verkefninu hefur Margrét Blöndal, útvarpskona með meiru og um hönnun og uppsetningu sér Björn G. Björnsson, leikmyndahönnuður