Kántrýsetur opnað í Kántrýbæ
Kántrýsetur var formlega opnaði í Kántrýbæ á Skagaströnd á laugardaginn en þar er ævintýraleg og óvenjuleg saga Hallbjörns Hjartarsonar til sýnis. Í tilefni opnunarinnar setti Magnús Kjartansson saman hljómsveit til heiðurs Hallbirni Hjartarsyni og spilaði hún á tónleikum og á kántrýballi í Kántrýbæ um kvöldið.
Stórsöngvarinn Björgvin Halldórsson ásamt söngkonunum Selmu Björnsdóttur og Heiðu Ólafsdóttur komu fram á tónleikunum í Kántrýbæ ásamt heiðurshljómsveitinni.
Hugmyndin um Kántrýsetur er ekki ný af nálinni en er nú loks að verða að veruleika. Það eru núverandi rekstraraðilar Kántrýbæjar, þau Gunnar Sveinn Halldórsson og Svenny H. Hallbjörnsdóttir (Hjartarsonar) sem standa að setrinu með stuðningi Menningarráðs Norðurlands vestra, Minningarsjóðsins um hjónin frá Garði og Vindhæli, Sveitarfélagsins Skagastrandar og Iðnaðarráðuneytis.
Umsjón með verkefninu hafði Margrét Blöndal, útvarpskona með meiru og um hönnun og uppsetningu sá Björn G. Björnsson, leikmyndahönnuður.
/Húni.is