Kántrýsetur opnar á Skagaströnd

Kántrýsetrið Skagaströnd opnar þann 11. júní nk. en þar er um að ræða sýningu um sögu Kúreka Norðursins Hallbjöns Hjartasonar. Sýningin er sett upp með fjölbreyttum hætti og má nefna hljóð og mynd, textum og ýmsum munum og fleiru frá ferli kántrýkónksins. Mikið hefur verið lagt í að gera sýninguna sem gæsilegasta.

Auk sýningarinnar mun Kántrýsetrið verða með ýmsar uppákomur, tónleika og sýningar um frægar kántrýstjörnur verða settar upp. Byrjað er að vinna að sýningu um kántrý drottningarnar Dolly Parton og Tammy Waynet.

Kántrýsetrið er staðset í Kántrýbæ á Skagastönd vöggu Íslenskar kántrýtónlistar.

Formleg opnun setursins verður laugardaginn 11. júní og af því tilefni hefur Magnús Kjartansson búið til heiðurshljómsveit Hallbjörns Hjartarssonar með söngvarana Björgvin Halldórsson, Selmu Björnsdóttur og Heiðu Ólafsdóttur í fararbroddi. Hljómsveitin mun halda tónleika í Kántrýbæ og slá svo upp sannkölluðu kántrýballi að hætti kúreka norðursins.

Fleiri fréttir