Kappróður frá einstöku sjónarhorni

Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land um helgina. Á Skagaströnd fóru hátíðarhöldin fram í blíðskaparveðri á laugardaginn og venju samkvæmt var það Björgunarsveitin Strönd sem hafði veg og vanda af dagskránni. Þar náði Róbert Daníel Jónsson einstöku myndskeiði af kappróðri sem fór fram við höfnina með notkun flygildis.
„Auðvelt er að sjá úr lofti hvort sé verið að róa í takt,“ segir Róbert Daníel á Facebook-síðu sinni en myndskeiðið sýnir einstakt sjónarhorn af kappróðrinum.
Mælt er með að horfa á myndskeiðið í hæstu gæðum, eða í HD.