Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps hélt þrenna tónleika sunnan heiða
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
21.11.2013
kl. 09.08
Um síðustu helgi hélt Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps í víking og hélt þrenna tónleika sunnan heiða. Á föstudagskvöldinu var sungið á Akranesi og tvennir tónleikar voru haldnir í Langholtskirkju á laugardeginum og var aðsókn mikil og stemningin góð.
Í haust var tekin upp á ný söngdagskrá kórsins sem flutt var á síðasta vetri þar sem lög Geirmundar Valtýssonar er gerð góð skil við undirleik hljómsveitar Skarphéðins H. Einarssonar. Lögin voru útsett af Rögnvaldi Valbergssyni en stjórnandi kórsins er Sveinn Árnason, undirleikari Elvar Ingi Jóhannesson og Hjálmar B. Guðmundsson syngur einsöng.