Karlareið á Svínavatni nk. laugardag
Árleg karlareið á Svínavatni verður laugardaginn 16. mars nk. Riðinn verður hringur á vatninu og að ferðinni lokinni verður haldið í Reiðhöllina þar sem grillað verður, sungið og spaugað.
Mæting er við Dalsmynni kl. 14:00 og verð er kr. 2.500. Samkvæmt heimasíðu hestamannafélagsins Neista er miðað við það að menn sjái að mestu um drykki sína sjálfir.
Skráning í ferðina þarf að berast ekki seinna en annað kvöld, miðvikudagskvöldið 13.mars, á neisti.net@simnet.is eða hjá Magnúsi í síma 897 3486 eða Herði í 894 0081.