Kastali risinn á Blönduósi
Unga fólkið á Blönduósi hafði svo sannarlega ástæðu til að gleðjast á föstudaginn var en þá var tekinn í notkun stórglæsilegur kastali á lóð Blöndskóla. Þess er skemmst að minnast að í sumar var stærsti ærslabelgur landsins settur upp á sömu lóð, við hlið sparkvallarins, og er því óhætt að segja að skólinn státi nú af myndarlegum leikvelli fyrir nemendur sína.
Þegar blaðamaður Feykis átti leið um síðdegis á föstudegi voru margir að leik í nýju tækjunum.