Katrín María framkvæmdastjóri SSNV
Jón Óskar Pétursson framkvæmdastjóri SSNV mun fara í eins árs launalaust námsleyfi í sumar. Katrín María Andrésdóttir verkefnisstjóri atvinnuþróunar hjá SSNV mun leysa hann af í námsleyfinu. Auglýst hefur verið eftir atvinnuráðgjafa með aðsetur á Sauðárkróki og rennur umsóknarfrestur út í dag.
Að sögn Bjarna Jónssonar formanns SSNV hefur lengi staðið til að auka hlut atvinnuþróunar og því sé mikilvægt að fá inn starfsmann á Sauðárkróki, þó að atvinnuráðgjafarnir starfi á öllu svæðinu, en SSNV hefur starfsstöðvar á Blönduósi, Skagaströnd, Sauðárkróki og á Hvammstanga þar sem jafnframt eru höfuðstöðvar samtakanna.
Bjarni segir að um fjölbreytt og spennandi starf sé að ræða en á starfsviði viðkomandi er m.a. samstarf með fyrirtækjum, stofnunum, einstaklingum og sveitarfélögum að atvinnuþróun, nýsköpun og ýmsum öðrum verkefnum á svæðinu. Að sögn Bjarna bíða ný verkefni nýs samstarfs, auk þeirra fjölbreyttu atvinnuþróunarverkefna sem þegar liggja fyrir.