Katrín ráðin deildarstjóri hjá HSN á Blönduósi

Katrín Kristinsdóttir tekur við starfi deildarstjóra hjúkrunar- og sjúkradeilda hjá HSN Blönduós. MYND FRÁ HSN
Katrín Kristinsdóttir tekur við starfi deildarstjóra hjúkrunar- og sjúkradeilda hjá HSN Blönduós. MYND FRÁ HSN

Katrín Kristinsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin deildarstjóri hjúkrunar- og sjúkradeilda hjá HSN Blönduósi, en hún mun hefja störf þann 1. desember næstkomandi. Katrín er lífinu úti á landi góðu kunn og hlakkar til að flytja til Blönduóss en hún hefur síðustu tvö árin starfað í Svíþjóð.

Í tilkynningu á síðu Heilbrigðisstornunar Norðurlands í morgun segir: „Katrín fór fyrst í sjúkraliðanám, vann að mestu á dvalarheimilinu Dalbæ á Dalvík sem sjúkraliði og aftur síðar í tvö ár sem hjúkrunarfræðingur ásamt nemaárunum sínum. Fjölskyldan flutti til Lundar í Svíþjóð 2016 þar sem hún vann sem sjúkraliði í eitt ár áður en flutt var heim aftur. Auk sjúkraliða- og hjúkrunarfræðináms sem lauk árið 2022 fór Katrín í nám í andlegri einkaþjálfun sem hún lauk árið 2023 og kenndi það fag í einn vetur í kjölfarið. „Það nám gaf mér frábæra reynslu í samtalstækni og verulega aukinn skilning á hvernig hugurinn virkar,“ segir Katrín.

Svíþjóð kallaði aftur árið 2024 en þar hefur Katrín unnið í um tvö ár sem hjúkrunarfræðingur á dvalarheimili fyrir aldraða í Åhus í Suður-Svíþjóð. Þar sinna hjúkrunarfræðingar aðallega skrifstofuvinnu og eru mikið í samskiptum við lækna, aðstandendur, iðjuþjálfa og sjúkraþjálfara. „Það hefur gefið mér góða reynslu af skipulagi og yfirsýn yfir það utanumhald sem þarf að hafa fyrir hvern og einn skjólstæðing. Mikið var einnig unnið með hreinlæti og hvað við getum gert til að bæta störf okkar og minnka smit og sýkingar,“ segir Katrín.

Katrín er mjög spennt fyrir flutningum heim. „Ég er að fara í fyrsta skipti í stjórnunarstöðu en tel mig tilbúna í það starf, er búin að fara vel út fyrir þægindarammann minn síðustu árin og vaxið í starfi eftir því.  Ég á afar auðvelt með að vinna með öðrum og er full tilhlökkunar að flytja á Blönduós og kynnast nýjum vinnustað og nýju fólki,“ segir Katrín að lokum.“

Katrín er boðin hjartanlega velkomin til liðs við HSN.

Fleiri fréttir