Kaupfélag Skagfirðinga greiðir starfsfólki sínu bónus

Nú um mánaðarmótin fær starfsfólk Kaupfélags Skagfirðinga og dótturfyrirtækja þess óvæntan glaðning í launaumslaginu þar sem félagið ætlar að greiða hverjum fastráðnum starfsmanni, í fullu starfi árið 2012, veglega bónusgreiðslu. „Rekstrarniðurstaða síðasta árs er góð hjá samstæðunni á flestum sviðum. Okkur er öllum ljóst hve miklu það skiptir fyrir héraðið að vel takist til um starfsemi Kaupfélags Skagfirðinga,“ segir í bréfi til starfsfólks.

Í bréfinu segir að rekstur félagsins hafi gengið vel á síðustu árum en samhliða því sem unnið hefur að uppbyggingu og rekstur aukinn og bættur, hafi tekist að lækka skuldir. Einn af stærri áhrifavöldum þessa, segir í bréfinu, er framlag starfsmanna félagsins.

Sem þakklætisvott fyrir góð störf á undangengnum árum fær hver starfsmaður sem uppfyllir áðurnefnd skilyrði kr. 100.000.- en hlutfallslega til þeirra er voru í fastráðnu hlutastarfi.

Fleiri fréttir