Kaupfélag Vestur Húnvetninga auglýsir styrki
Kaupfélag Vestur Húnvetninga auglýsir styrki sem verða veittir úr séreignasjóði KVH í pokasjóði.
Fram kemur í nýjasta tölublaði Sjónaukans að öllum er frjálst að sækja um styrk en með umsókninni þarf að fylgja greinagerð með lýsingu á verkefninu og markmiðum þess. Við úthlutun styrkja er horft til fjögurra þátta og þeir eru:
- Umhverfismál
- Menning og listir
- Íþróttir og útivist
- Mannúðarmál (heilbrigðismál)
Umsóknir skulu berast skriflega á skrifstofu KVH eða með tölvupósti á netfangið kvh@kvh.is. Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 26. september.