Kennarar á Skagaströnd óánægðir
Í dag afhentu kennarar á Skagaströnd Magnúsi Jónssyni sveitarstjóra undirskriftir 3142 kennara á landinu, þar sem þeir fara fram á kjarabætur og bætt starfsskilyrði. Samskonar listar hafa verið afhentir víða um land í gær og dag. Eins var yfirlýsing frá KSNV afhent, þar sem lýst er þungum áhyggjum af skólamálum á landinu.
Kennarar hafa í tvígang fellt kjarasamning á þessu ári og ljóst er að enn ber mikið á milli samningsaðila, þar sem deilunni var vísað til Ríkissáttasemjara í gærkvöldi.
/Fréttatilkynning