Kennsla hefst á ný á mánudaginn
Skrifað var undir samning ríkisins við framhaldsskólakennara í húsakynnum Ríkissáttasemjara í gær. Kennsla hefst því aftur í framhaldsskólum landsins á mánudaginn og ætti því lífið að hafa sinn vanagang á ný í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
Samkvæmt Rúv.is gildir samningurinn sem undirritaður var í gær til október 2016 og verður hann borinn undir atkvæði kennara á næstu vikum.
Launahækkanir í nýjum kennarasamningi tengjast mjög breytingum á vinnuskyldu kennara og lengingu skólaársins. Launahækkunin verður 2,8% til að byrja með. Síðan verða hækkanir á samningstímanum. Þegar allt er lagt saman geta þær orðið 29%.
Við undirskrift er verkfalli því sem staðið hefur í framhaldsskólum í þrjár kennsluvikur frestað og kennsla hefst á mánudaginn. Samningarnir verða svo bornir undir félagsmenn í félagi framhaldsskólakennara og félagi stjórnenda í framhaldsskólum. Þá verður sérstök atkvæðagreiðsla um vinnufyrirkomulag kennara, eigi síðar en í febrúar á næsta ári. Hafni þeir því þá fellur samningurinn úr gildi.
Gunnar Björnsson og Aðalheiður Steingrímsdóttir, formenn samninganefndanna sögðu í samtali við Ríkisútvarpið að þegar skrifað var undir samninginn, að um væri að ræða merkan áfanga í umbótum á skólastarfi í framhaldsskólum landsins. Þá sagði Magnús Pétursson, ríkissáttasemjari að þetta hafi verið tímamótasamningur sem gerður var og staðfestur í gær.