Keppendur frá FNV í verðlaunasætum á Íslandsmóti verk- og iðngreina

Íslandsmót verk- og iðngreina fór fram um helgina í Háskólanum í Reykjavík en keppt var í 19 iðngreinum og öttu kappi nemendur frá skólum um allt land. Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra sendi keppendur í þrjár greinar þ.e. í rafvirkjun, suðu og trésmíði.

Samkvæmt heimasíðu FNV stóðu nemendur FNV sig með prýði og komust á verðlaunapall í rafvirkjun og trésmíði.  Ingvi Þór Óskarsson hlaut annað sætið í rafvirkjun og Stefán Ingi Gestsson hlaut þriðja sætið í trésmíði.

Hægt er að sjá myndir frá keppninni á www.verkidn.is.

Fleiri fréttir