Keppt í Smala í mótaröð Neista í kvöld
Smali er næsta mót Mótaraðar Neista. Mótið hefst í kvöld kl. 20:00. Smalinn dregur nafn sitt af einu mikilvægasta hlutverki íslenska hestsins frá örófi alda. Eiginleikar sem prýða góðan smala og smalahest eru nauðsynlegir ef árangur á að nást, þetta eru þættir eins og hraði, kjarkur, fimi og snerpa.
Riðin er braut sem mörkuð er keilum sem ná upp á síður hests. Keilurnar skulu vera þannig útbúnar að þær falli við litla snertingu. Árangurinn ræðst af brautartíma og felldum keilum. Reiknireglur eru þær sömu og í tímabraut torfærunnar. Smalinn er hrein grein í þeirri merkingu að árangurinn er mælanlegur án frávika, þ.e. hann ræðst eingöngu af tíma og felldum keilum en ekki mati dómara. Dómarar eru engu að síður til staðar og meta hvort knapinn fari gegnum öll hlið, telja felldar keilur og hafa eftirlit með reiðmennsku knapa líkt og í öðrum keppnisgreinum.
Nánari upplýsingar og teikningu af brautinni er að finna á heimasíðu Hestamannafélagsins Neista.