Ketilbjöllunámskeið á Blönduósi og Hvammstanga

Kettlebells Iceland býður upp á stutt og hnitmiðað grunnnámskeið í ketilbjölluæfingum í íþróttamiðstöðinni á Blönduósi á morgun, þriðjudag 17. janúar, kl. 17-18:30 og Grunnskóla Húnaþings vestra á Hvammstanga, miðvikudaginn 18. janúar, kl. 18-20.

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu grunnæfingarnar og hvernig þær auka styrk, úthald og snerpu hjá ungum sem öldnum. Samkvæmt heimasíðunni kettlebells.is hentar námskeiðið sérstaklega þeim sem æfa sjálfir og vilja ná meiri árangri.

Þátttökugjaldið er 1.500 krónur. Ketilbjöllur verða til sölu á staðnum á 25% afslætti. Skráning og nánari upplýsingar, Egill Steingrímsson, s. 858 0850 og Guðjón Svansson, gudjon@kettlebells.is , s. 857 1169

 

Fleiri fréttir