Kjallarinn á leið til Akureyrar með Manstu?

Leikfélagið Kjallarinn sýndi framlag Höfðaskóla til Þjóðleiks 2012-2013 Manstu? eftir Sölku Guðmundsdóttur í Fellsborg á Skagaströnd sl. miðvikudag. Sýningin gekk vel að sögn Maríu Aspar Ómarsdóttur leikstjóra en leikhópurinn fer um helgina til Akureyrar og tekur þátt í lokahátíð verkefnisins og stígur þar tvisvar á svið. –Við hlökkum mikið til að fara á Akureyri og sýna aftur, og ekki minnst að sjá verkin hjá hinum hópunum, segir María.

Ekki eru fleiri sýningar á döfinni hjá hópnum í heimabyggð, en hann hefur verið beðinn um að hafa þær fleiri svo það er allt opið, að sögn Maríu. Þetta er í annað skiptið sem Kjallarinn tekur þátt í Þjóðleiksverkefninu og hefur María veitt krökkunum leiðsögn.

-Ég hef kennt leiklist hér í vali á unglingastigi í þrjá vetur, tekið þátt í Þjóðleik tvisvar og sett upp barnasýningu. Það hafa veið í kringum fimmtán nemendur í hópunum hjá mér þessi þrjú ár. Sýningarnar hjá okkur hafa alltaf gengið mjög vel og krökkunum þykir þetta skemmtilegt og þroskast þau mikið í svona vinnu, segir María Ösp.

Fleiri fréttir