Kjalvegur vonandi opnaður í næstu viku

Á heimasíðu Vegagerðarinnar segir frá því að reiknað sé með því að Kjalvegur verði opnaður um miðja næstu viku. Ástæða þess að fjallvegir á hálendinu opnast seinna í ár en undanfarin ár er fyrst og fremst sú að það er meiri snjór á hálendinu en venjulega. Þrátt fyrir það hefur verið mokaður snjór á fjallvegum í ár og í sumum tilvikum eins og á Kjalvegi nokkuð meira en gert hefur verið síðastliðin ár.

Mokað hefur verið í gegnum nokkur höft undanfarnar vikur en minni fjárveitingar gefa ekki tilefni til að fara í miklu umfangsmeiri snjómokstur á hálendinu en tíðkast hefur, það myndi einnig þjóna litlum tilgangi þar sem á sumum stöðum hafa legið „stöðuvötn“ yfir vegum fram undir núna. Þannig hefur það til dæmis verið á Landmannaleið.

Mokað hefur verið á Kjalvegi gegnum höft á Bláfellshálsi fyrir um 3 vikum síðan og um nýliðna helgi var mokað í gegnum höft sem voru á leiðinni norðan Kerlingafjallavegar að Hveravöllum, þetta flýtir fyrir þornun vegarins.

Heimild: Vegagerd.is

Fleiri fréttir