Kjarasamningur grunnskólakennara undirritaður í kvöld

Fulltrúar grunnskólakennara skrifuðu undir nýjan kjarasamning kl. 21:45 í kvöld samkvæmt frétt Rúv.is og þar með lauk langri og strangri kjaradeilu grunnskólakennara og sveitarfélaga. Því er ljóst að á morgun verður ekki af áður boðaðri vinnustöðvun grunnskólakennara og skólahald morgundagsins því með hefðbundnum hætti.

Kjarasamningar kennara hafa verið lausir í um tvö ár og hafa grunnskólakennarar átt í kjaraviðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga undanfarna mánuði. Viðræðunum var vísað til Ríkissáttasemjara í mars síðastliðnum og hafa fulltrúar grunnskólakennara og sveitarfélaga fundað stíft undir hans stjórn síðustu daga.

„Nú hefur verið staðfest að samningur sé í höfn og hafi verið undirritaður kl. 21.45 í kvöld. Nákvæmar upplýsingar um efni hans og innihald liggja ekki fyrir á þessari stundu en þó er ljóst að í samningnum er, auk launahækkana, kveðið á um breytingar í skólastarfi,“ segir loks á vef Ríkisútvarpsins.

Fleiri fréttir