Kjarnafæði yfirtekur SAH afurðir

Kjarnafæði mun yfirtaka rekstur SAH afurða á Blönduósi. Mynd: KSE.
Kjarnafæði mun yfirtaka rekstur SAH afurða á Blönduósi. Mynd: KSE.

Félagsfundur Sölufélags Austur-Húnvetninga hefur heimilað stjórn félagsins að ganga til samninga við fyrirtækið Kjarnafæði, sem í dag á tæplega helmingshlut í félaginu, um að það taki við rekstri SAH afurða og öllum fasteignum félagsins.

Í samtali við Feyki nú áðan sagði Eiður Gunnlaugsson, starfsmaður Kjarnafæðis og varaformaður stjórnar félagsins, að kjötmarkaðurinn væri mjög erfiður og þungur um þessar mundir. „Við erum að þessu til að vita hvort við getum hagrætt í rekstrinum. Því var ákveðið að stíga skrefið til fulls núna. Meiningin er að starfsemin styrkist á báðum stöðum,“ sagði hann.

Eiður segir engin sérstök áföll í rekstrinum hafa orðið til þess að þetta skref væri stigið nú, það sé búið að vera í umræðunni í nokkur ár. Hefði loks verið ákveðið núna í sumar að láta slag standa. „Það er búið að samþykkja þetta, við þurfum bara að ganga frá því formlega, með fyrirvara um samþykki samkeppniseftirlitsins,“ sagði hann ennfremur.

„Við erum búnir að vera viðloðandi Blönduós og skipta við þetta félag í 30 ár og höfum átt stóran hlut í félaginu sl. áratug. Við höfum átt mjög gott samstarf við þessa aðila og það hefur aldrei borið skugga á neitt í þeim efnum. Maður hefur hlýhug og velvilja til þessa svæðis og vill reyna að standa sig og gera sitt besta,“ sagði Eiður að lokum.

Fleiri fréttir