Kjölur undirritar kjarasamning við ríkið
Kjölur, eitt stærsta einstaka aðildarfélagið innan BSRB sem telur um 1000 félagsmenn sem starfa á svæðunum í kringum Akureyri og allt vestur til Borgarness, hefur skrifað undir nýjan kjarasamning við ríkið. Samningurinn gildir frá 1. mars 2014 til 30. apríl 2015. Eins og Feykir hefur greint frá sameinaðist Starfsmannafélag Skagafjarðar Kili fyrr á þessu ári.
Samkvæmt samningnum mun 2,8% launahækkun, eða 8 þúsund, frá taka gildi frá og með 1. mars 2014. Á launataxta sem eru lægri en 230.000 komur sérstök hækkun til viðbótar um 1.750 kr. Þá var samið um tvær eingreiðslur, 14.600 kr. við samþykkt kjarasamnings og 20 þúsund í lok samnings 1. apríl 2015. Orlofsuppbót verður 39.500 kr. og persónuuppbót verður 73.600 kr. en það er hækkun upp á 32.300.
Helstu atriði samningsins eru:
- Að laun hækki um 2,8% eða að lágmarki 8000. kr. fyrir dagvinnu miðað við fullt starf. Á launum sem eru lægri en 230.000 kr. á mánuði komi sérstök hækkun til viðbótar að upphæð 1.750 kr.
- Við samþykkt samningsins greiðist 14.600 kr. eingreiðsla miðað við fullt starf í febrúar 2014 en hlutfallslega m.v. starfstíma og starfshlutfall í sama mánuði þar sem það á við.
- Eingreiðsla 20.000 kr. miðað við þá sem eru í fullu starfi í febrúar 2015 greiðist þann 1. apríl 2015 en hlutfallslega m.v. starfstíma og starfshlutfall í sama mánuði.
- Persónuuppbót verður á samningstímanum 73.600 kr.
- Orlofsuppbót verður á samningstímanum 39.500 kr.
- Í samningnum er auk þess að finna leiðréttingar er snúa að vaktavinnufólki
- Nýr kafli um fræðslumál kveðjur á um uppsöfnun námsfría
- Samningurinn mun gilda frá 1. mars 2014 til 30. apríl 2015
Fréttatilkynning