Kjördæmisfélag Dögunar í Norðvestur kjördæmi stofnað

Næstkomandi sunnudag, 25. nóvember, verður haldinn stofnfundur kjördæmisfélags Dögunar í Norðvestur kjördæmi og fer hann fram miðsvæðis í kjördæminu, í Bjarkarlundi í Reykhólahreppi. Hefst hann kl. 14:00 og gert er ráð fyrir að hann standi til  til 18:00.

Dagskrá:

1         Ákvörðun um stjórnarkjör. Kosning í stjórn eða ákvörðun um póstkosningu, sem lokið yrði fyrir þriðjudaginn 11. desember.

2         Umræður um aðferðir um val á framboðslista í kjördæminu, sbr. 39. gr. laga Dögunar.

3         Önnur mál.

Undirbúningsstjórnin hvetur félagsmenn til að kynna sér hvað Bjarkarlundur hefur upp á að bjóða, en nefna má að kvöldið fyrir fundinn fer fram villibráðarveisla á staðnum með tilheyrandi skemmtidagskrá og dansleik; ef fólk vill mæta á laugardeginum, hafa það gott og gista.

Fólk sem ráðgerir að sækja stofnfundinn er beðið að hafa samband við einhvern úr undirbúningshópnum:

  • Ásthildur C. Þórðardóttir             456-3351/618-7751         asthildurcesil@gmail.com
  • Gísli Páll Guðjónsson                 662-4888                   gislipall@yahoo.com
  • Hanna Þ. Þórðardóttir                 860-1275                   kodid@simnet.is
  • Helgi Helgason                        899-6125
  • Pálmi Sighvatsson                     897-5823                   dreki@isholf.is
  • Örn S. Sveinsson                      456-2563

Félagsmenn eru að þessu og öðru leyti hvattir til að fylgjast vel með fréttum á www.xdogun.is og tölvupóstum. Atkvæðisrétt hafa skráðir félagsmenn Dögunar í kjördæminu – nýir félagar velkomnir. Hægt er að skrá sig á heimasíðu Dögunar www.xdogun.is.

Fleiri fréttir