Kjördæmismótið í skólaskák fór fram um helgina
Kjördæmismót í skólaskák á Norðurlandi vestra fór fram í Varmahlíðarskóla, sl. laugardag, þann 13. apríl. Sex keppendur mættu til leiks.
Sigurvegari í eldri flokki (8.-10. bekk) var Halldór Broddi Þorsteinsson með fjóra og hálfan vinning og í yngri flokki (1.-7. bekk) Hákon Ingi Rafnsson með fjóra vinninga. Þeir eru báðir úr Árskóla á Sauðárkróki og hafa þar með unnið sér þátttökurétt í Landsmóti í skólaskák, sem fram fer á Patreksfirði 2.-5. maí.
Í þriðja sæti á mótinu, varð Auður Ragna Þorbjarnardóttir, úr Grunnskólanum austan Vatna, með þrjá vinninga, en hún er í 5. bekk.