Klausturkirkjan að Þingeyrum kom í leitirnar við fornleifarannsóknir
Þingeyraverkefnið, sem verið er að hleypa af stokkunum, var kynnt fyrir íbúum í Austur-Húnavatnssýslu á Þingeyrum í síðustu viku. Um er að ræða umfangsmikið verkefni sem er í raun þríþætt. Það miðar að uppgreftri minja tengdum klaustrinu, greiningu gróðurfars á miðöldum í næsta nágrenni þess og loks athugunum á handritamenningu miðalda.
Feykir ræddi við Steinunni Kristjánsdóttur prófessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands en hún hefur verið að skrá minjar klaustra sem rekin voru á Íslandi á kaþólskum tíma (1000-1550). Rannsóknin að Þingeyrum hefur leitt í ljós einkar áhugaverðar niðurstöður, sem fjallað er um í nýjasta tölublaði Feykis, sem kom út í dag.