Klikkað áskriftartilboð
Feykir býður nú upp á athyglisvert áskriftartilboð í samstarfi við verslanir Olís um allt land en hundrað fyrstu nýju áskrifendurnir að blaðinu fá Olís-lykilinn með tíu þúsund króna inneign. Eldri áskrifendur geta einnig dottið í lukkupottinn því þrír þeirra verða dregnir út og fá lykil með sömu afsláttarkjörum. Það eina sem þarf að gera er að hringja í síma 455 7171 eða senda póst á feykir@nyprent.is og óska eftir áskrift.
Afsláttarkjörin eru margvísleg og góð og borgar sig fyrir fólk að kíkja á þau en ávinningurinn er líka að viðkomandi fær góðan félaga sem sjaldan klikkar. Feykir kemur út 48 sinnum á ári og jafnan stútfullt af fréttum og dægurefni af Norðurlandi vestra og kostar aðeins kr. 450,- hvert blað. Tilboðið gildir til 6. desember 2013 en vert er að hafa í huga að aðeins hundrað fyrstu njóta kjaranna.
Nánari upplýsingar HÉR