Knáir knapar á afmælissýningu Neista

Afmælissýning Neista verður haldið í reiðhöllinni Arnargerði sunnudaginn 28. apríl kl. 14:00. Í tilefni afmælisins verða Neistafélagar með sýningu í Reiðhöllinni Arnargerði þar sem taka munu þátt knáir knapar á aldrinum tveggja til 67 ára.

Hestamannafélagið Neisti var stofnað í Dalsmynni 1943 og er því 70 ára í ár. Á heimasíðu hestamannafélagsins segir að hestakosturinn í sýningunni verður allt frá þægum og góðum barnahestum til margreyndra keppnisgæðinga.

Að sýningu lokinni verður afmæliskaffi í boði félagsins.

Fleiri fréttir