Knattspyrnuleikir helgarinnar

Meistaraflokkur kvenna hjá Tindastóli mætir liði Álftaness á Bessastaðavelli kl. 19:00 í kvöld, fimmtudaginn 15. ágúst.

Annað kvöld, föstudaginn 16. ágúst, tekur svo meistaraflokkur karla hjá Tindastóli á móti Selfyssingum á Sauðárkróksvelli. Leikurinn hefst kl. 19:15.
Laugardaginn 17. ágúst nk. taka liðsmenn Kormáks/Hvatar á móti Berserkum á Hvammstangavelli kl. 14:00.

Sunnudaginn 18. ágúst nk. fá Tindastólsstúlkur liðsmenn ÍR í heimsókn á Sauðárkróksvöll og hefst leikurinn kl.17:00.

Fleiri fréttir