Knattspyrnusambandi Íslands á Blönduósi í dag
Allir þeir sem hafa verið að æfa fótbolta í vetur hjá Hvöt eru hvattir til að mæta í íþróttahúsið í dag, miðvikudaginn 25. maí, kl. 16:00. Þar munu þeir Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 og Hólmar Örn Eyjólfsson leikmaður U21 og West Ham, mæta og gefa öllum börnum DVD disk sem KSÍ var að gefa út með tækniæfingum. Gengið verður inn um inngang á móts við Smárabæ þ.e. norðurendann.
DVD diskurinn heitir „Tækniskóli KSÍ“ og var búinn til fyrir börn og unglinga sem æfa knattspyrnu á Íslandi. Á disknum sýna flinkir fótboltakrakkar hátt í 100 skemmtilegar tækniæfingar sem allir geta æft sig í sjálfir til að bæta knatttækni sína. Leikmenn úr A- landsliði karla og kvenna taka þátt í æfingunum og gefa góð ráð í hverjum æfingaflokki fyrir sig. Allir krakkar sem æfa fótbolta eru hvattir til að mæta.
/Húni.is