Kólnandi veður á morgun

Á Norðurlandi er hálka eða hálkublettir mjög víða, samkvæmt vef Vegagerðarinnar. Norðaustan 8-15 m/s og rigning eða slydda með köflum verður á Ströndum og Norðurlandi vestra í dag, en snjókoma til landsins síðdegis.

Norðaustan 5-13 á morgun og dálítil él á annesjum og Ströndum. Hiti 0 til 3 stig, en kólnar á morgun.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á föstudag:
Norðan og norðaustan 8-13 m/s og dálítil él NA-til og með N-ströndinni, en bjartviðri S- og V-lands. Frost 0 til 5 stig, en kólnandi um kvöldið.

Á laugardag og sunnudag:
Norðaustan 3-8 m/s um landið S- og V-vert og víða léttskýjað. Norðvestan 5-13 NA-til og lítilsháttar él. Frost 1 til 10 stig, mest inn til landsins.

Á mánudag:
Hæg breytileg átt og víða léttskýjað. Frost 3 til 13 stig, mest í innsveitum. Sunnan og suðaustan 8-13 vestast undir kvöld, skýjað og hlýnandi.

Á þriðjudag:
Útlit fyrir suðaustanátt með snjókomu S- og V-lands og síðar slyddu eða rigningu og hita 0 til 5 stig. Bjartviðri á N- og A-landi og minnkandi frost.

Á miðvikudag:
Horfur á suðaustan- og austanátt og úrkomu víða um land, mest SA-til. Hiti 0 til 6 stig.

Fleiri fréttir