Kólnandi veður í kortunum
Suðvestan 15-23 m/s og él er á Ströndum og Norðurlandi vestra, talsvert hægari á morgun. Frost 0 til 7 stig. Samvkæmt vef Vegagerðarinnar er hálka, snjóþekja, éljagangur og skafrenningur á vegum Norðurlands.
Hálka og skafrenningur er á Þverárfjalli en snjóþekja og skafrenningur á Vatnsskarði. Snjóþekja og snjókoma er á Siglufjarðarleið en ófært og óveður er á Öxnadalsheiði.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Breytileg átt, 3-10 m/s og skýjað með köflum, en él nyrst framan af degi. Vaxandi austanátt um kvöldið og fer að snjóa S-lands. Frost 1 til 13 stig, mest inn til landsins.
Á föstudag:
Suðaustan 13-20 m/s, hvassast NA-til og snjókoma, en síðar slydda eða rigning. Snýst í vestan 8-13 með éljum S- og V-til um kvöldið. Hlánar við S- og A-ströndina.
Á laugardag:
Útlit fyrir suðaustanhvassviðri með slyddu eða rigningu og hlýnadi veður.
Á sunnudag og mánudag:
Suðlæg eða breytileg átt, en norðaustanátt á Vestfjörðum. Úrkoma með köflum og hiti kringum frostmark.