Kólnandi veður og úrkoma í kortunum

Veður fer kólnandi á landinu næstu daga og gerir Veðurstofa Íslands ráð fyrir úrkomu, þá rigningu og jafnvel slyddu sumstaðar á landinu. Í dag verður norðaustan 5-13 m/s á Norðurlandi vestra og lítilsháttar rigning með köflum. Hiti 1 til 7 stig.

Veðurhorfur næstu daga:

Á miðvikudag:
Norðaustan 5-10 m/s og rigning á N- og A-landi, en stöku skúrir annars staðar, einkum síðdegis. Hiti 3 til 13 stig, hlýjast S-lands.

Á fimmtudag:
Norðaustan 5-13. Rigning á Vestfjörðum og suðaustantil en annars úrkomulítið. Hiti 5 til 11 stig.

Á föstudag:
Austlæg átt, 3-10 m/s. Smásúld við austurströndina og rigning um morguninn með suðvesturströndinni, annars skýjað en þurrt. Hiti frá 5 stigum austast, upp í 16 stig á vestanverðu landinu.

Á laugardag, sunnudag og mánudag:
Austan- og norðaustanátt, 3-10 m/s. Skýjað með köflum og úrkomulítið. Hiti 2 til 6 stig austanlands en 10 til 18 vestanlands.

Fleiri fréttir