Komast að því hvað er að gerast á Norðurlandi vestra

Aðalfundur hjá tengslanetinu Virkja-Norðvestur konur var haldinn á Gauksmýri sl. miðvikudagskvöld. Á fundinum var m.a. farið yfir starf síðasta árs, lagðir fram endurskoðaðir reikningar og kosið í stjórn og nefndir fyrir næsta starfsár. Helga Guðrún Hinriksdóttir var kosin formaður á ný og Feykir náði af henni tali og spurði hana út í starfsemi Virkju og sérstöðu hennar.

Það sem félagsskapurinn hefur gefið mér persónulega er að ég hef fengið tækifæri til þess að kynnast því sem nágrannasýslur mínar hafa upp á að bjóða en markmið Virkju er að komast að því hvað er að gerast á Norðurlandi vestra, á hverju svæði fyrir sig. Til að mynda er þetta er í fyrsta skipti sem ég er að kynnast því sem er að gerast í Austursýslunum og í Skagafirði og þeim konum sem þar búa,“ segir Helga en hún er búsett á Hvammstanga.

Um starfsemi Virkju segir Helga að reynt er að halda u.þ.b. fjóra viðburði á ári. Farið er í menningarferðir og fyrirtækjaheimsóknir með það að fyrirrúmi að bjóða upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. Engar kvaðir eru utan hóflegra félagsgjalda.

„Konur velja það sjálfar hvort og hvenær þær koma á viðburði. Ef einhverjar séróskir koma á borð til okkar, hvort sem um er að ræða fræðslu eða heimsóknir þá reynum við að koma til móts við þær.“   

Í stjórn með Helgu voru kosnar: Auður Herdís Sigurðardóttir frá Blönduósi, Dagný Marín Sigmarsdóttir frá Skagaströnd, Sigríður Elín Þórðardóttir frá Sauðárkróki og Jensína Lýðsdóttir frá Skagaströnd.

Nánar um málið í næsta tölublaði Feykis, sem kemur út nk. þriðjudag.

Fleiri fréttir