Konukvöld á Café Bjarmanesi
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
26.08.2011
kl. 12.15
Konukvöld verður haldið laugardaginn 27. ágúst, kl. 20:30 á Café Bjarmanesi.
Þema kvöldsins er rautt. Gaman væri að mæta í rauðri flík, með rauðan hatt, rautt hárskraut, skart eða mæta í rauðu dansskónum sínum.
- Sigga Kling mætir á svæðið og er með alveg nýtt prógram.
- Tískusýning frá Litlu Skvísubúðinni, og skvísur frá Skagaströnd sýna.
- Andrea Kasper verður með zúmbakynningu.
- Guðlaugur Ómar mætir á svæðið og heldur uppi fjörinu með söng og gítarleik.
Miðaverð er 1500. Kr.
P.s. Strákar þið megið koma kl. 23:30.
Café Bjarmanes.