Körfuboltavöllurinn lagfærður að frumkvæði nemenda

Tíminn.is segir frá því að Nemendur í 7. bekk Höfðaskóla á Skagaströnd vildu láta laga körfuboltavöll skólans en körfur vallarins voru lélegar og malbikið svo gróft að hætta var á að krakkar slösuðu sig ef þeir féllu á það í hita leiksins. Búin var til kostnaðaráætlun og bréf sent til sveitarstjórnar.

Sagt er frá þessu á vefmiðlinum Tíminn.is. Nemendurnir tóku sig til og bjuggu til kostnaðaráætlun fyrir verkið og sendu sveitastjórn ásamt bréfi. Í bréfinu segi m.a. "Vegna ástands vallarins er hann minna notaður því enginn vill meiða sig eða skemma fötin sín. Við vildum gjarnan fá nýjar körfur og fleiri, mismunandi háar.“ Undir bréfið skrifa allir nemendur bekkjarins og fylgdi teikning af vellinum og útreikningur á kostnaði.

„Viðbrögð sveitarstjórnar voru mjög jákvæð fyrir erindinu og ánægja með að nemendur skólans létu sér annt um uppbyggingu og framfarir í umhverfi skólans“ segir Magnús B. Jónsson sveitarstjóri en sveitastjórnin tók málið fyrir á fundi þar sem hún samþykkti að lagfæra völlinn. Einnig var nemendum 7. bekkjar sent bréf frá sveitastjórninni þar sem þeim var þakkað fyrir framtakið og niðurstaðan tilkynnt.

Nú er búið að malbika völlinn og einnig er búið að kaupa ný körfuboltaspjöld en það er beðið eftir staurum svo hægt sé að setja þau upp.

Það ætti því ekki að vera langt í að krakkar í Höfðaskóla geti spilað körfubolta á almennilegum velli þökk sé þeirra eigin framtakssemi.

Feykir.is gleðst yfir því að frumkvæði krakkanna sé enn og aftur til staðar en fyrir nokkrum árum voru þau kjörinn íbúar ársins á Norðurlandi vestra fyrri frumkvæði sitt og jákvæðni.

Fleiri fréttir