Kormákur/Hvöt áfram í bikarkeppni KSÍ
Sameiginlegt lið Kormáks/Hvatar komst í gegnum forkeppni bikarkeppni KSÍ sl. þriðjudag en þá lék liðið fyrsta leik sumarsins gegn Hömrunum á Hvammstangavelli.
Norðanáttin greinir frá því að lið Kormáks og Hvatar hafi fengið mörg marktækifæri en við leikslok var markatalan 1-0 Kormáki/Hvöt í vil. Sveinbjörn Guðlaugsson átti markið sem hann skoraði á 48. mínútu eftir stoðsendingu frá Herði Gylfasyni.
Næsti leikur liðsins er á móti Magna frá Grenivík og fer hann fram á Grenivíkurvelli nk. sunnudag 6. maí, kl. 14.
Á heimasíðu Norðanáttar má skoða myndir frá leiknum.