Kosið verður milli sr. Solveigar Láru og sr. Kristjáns

Atkvæði voru talin í kjöri til vígslubiskups á Dómkirkjuloftinu á Hólum í gær. Þrjú höfðu gefið kost á sér til embættisins, sr. Gunnlaugur Garðarsson, sr. Kristján Björnsson og sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir.

Atkvæði féllu þannig að sr. Gunnlaugur fékk 27 atkvæði, sr. Kristján 57 og sr. Solveig Lára 76. Þar sem enginn hlaut hreinan meirihluta verður valið milli þeirra tveggja er flest atkvæði hlutu.

Alls  voru 181  á kjörskrá. 168 greiddu atkvæði eða um 93%.  Af greiddum atkvæðum voru160 gild, en átta ógild.

Kjörgögn vegna annarrar umferðar kosninganna verða send út í byrjun næstu viku. Gert er ráð fyrir að nýr biskup verði vígður á Hólahátíð þann 12. ágúst næstkomandi.

Fleiri fréttir