Kótilettukvöld á Blönduósi

Kótilettukvöld verður á Blönduósi á laugardaginn kemur.
Kótilettukvöld verður á Blönduósi á laugardaginn kemur.

Frjálsa kótilettufélagið í Austur-Húnavatnssýslu, sem telur 82 félagsmenn, ætlar að standa fyrir kótilettukvöldi á Pottinum á Blönduósi laugardaginn 26. september. Fjögur slík kvöld voru haldin síðasta vetur og að sögn forsprakka þeirra, Valdimars Guðmannssonar, fór mætingin vaxandi og nálgaðist fimmtíu manns síðasta kvöldið.

„Við ætlum að byrja aftur á einsárs afmæli okkar 26. september og erum búin að setja niður fjögur kvöld í vetur, öll í Eyvindarstofu“ segir Valdimar, en fyrsta kvöldið verður veislustjóri Jón Kristófer Sigmarsson, bóndi á Hæli, og með gítarinn kemur Stefán Ólafsson.

„Uppskrift að þessari máltíð er fengin hjá Kótilettufélagi Íslands á Húsavík, segir Valdemar. „Kótilettan skal vera þykk og vel barin, velt upp úr raspi með brúnuðum kartöflum, rabarbarasultu, grænum baunum, laukfeiti og rauðkáli. Við höfum mest notað E-flokk skrokka í þetta.“ 

Fleiri fréttir