KPMG á Blönduósi

Endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtækið KPMG hefur opnað skrifstofu á Blönduósi að Húnabraut 4. og eflist þar með þjónusta fyrirtækisins á Norðurlandi vestra. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að stjórnendur séu hvattir til að fá tilboð í gerð ársreiknings og skattframtals og kynna sér þá þjónustu sem er í boði.

Skrifstofan á Blönduósi er í hópi ellefu annarra skrifstofa og starfsstöðva um allt land en um 240 manns vinna hjá fyrirtækinu. Á Blönduósi starfa þær Valgerður Hilmarsdóttir og Sigrún Hauksdóttir.

Fleiri fréttir