Kristín Sigurrós tekur til starfa

Nýr blaðamaður, Kristín Sigurrós Einarsdóttir, hóf störf hjá Feyki í vikunni. Hún mun leysa af Berglindi Þorsteinsdóttur sem fer í sumarfrí og fæðingarorlof fram í mars á næsta ári.

Kristín er fædd og uppalin á Lundi í Lundarreykjadal í Borgarfirði en bjó um tíma í Fljótum þar sem hún vann hjá Kaupfélagi Skagafirðinga á Ketilási. Síðastliðin 13 ár hefur hún búið á Hólmavík og starfað við kennslu, verkefnastjórn í fullorðinsfræðslu og verið bókavörður.

Kristín er stúdent frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og með B.Ed. próf í grunnskólakennarafræðum frá Háskólanum á Akureyri, þar sem hún stundar nú mastersnám á menntavísindasviði.

Auk ofangreindra starfa hefur Kristín unnið hjá Skessuhorni og verið fréttaritari fyrir Morgunblaðið, Bændablaðið og svæðisútvarp Vestfjarða. Einnig  gaf hún um tíma út héraðsblaðið Gagnveg í Strandasýslu.

Kristín er gift Alfreð Gesti Símonarsyni frá Barði í Fljótum og eiga þau þrjá syni og tvær sonardætur.

„Það er frábært að vera kominn aftur í Skagafjörðinn. Mig hefur eiginlega dreymt um það síðan ég fór héðan fyrir sautján árum. Fjölskyldan öll er mjög ánægð með þessa ákvörðun og ég hlakka til að takast á við nýtt starf og kynnast fólki og aðstæðum á Norðurlandi vestra í gegnum blaðamennskuna,“ segir Kristín.

Netfang Kristínar er kristin@feykir.is og símanúmerið 8673164.

Fleiri fréttir