Kristinn Sigmundsson og Víkingur Heiðar í Hofi í dag
Í dag kl 15:00 verða haldnir í Hofi einhverjir merkustu tónleikar á Norðurlandi þetta árið að margra mati þegar þeir leiða saman hesta sína Kristinn Sigmundsson og Víkingur Heiðar Ólafsson. Kristin Sigmundsson þarf ekki að kynna söngfólki, hann er einn besti - ef ekki besti - bassasöngvari heims.
Víking Heiðar Ólafsson þarf heldur ekki að kynna, þessi bráðungi drengur hefur spilað sig svo dátt inn í tónlistarheiminn á undanförnum misserum.
Vðfangsefni tónleikanna er Vetrarferðin (Die Winterreise) lagaflokkur eftir Franz Schubert við ljóð Wilhelms Müller. Vetrarferðin er í tveimur hlutum, með tólf kvæðum í hvorum hluta og segir sögu af ungum manni, óendurgoldinni ást hans og ferðalagi hans að vetri. Mörg af þessum sönglögum eru jafnvel orðin hluti af söngheimi Íslendinga.
Kristinn Sigmundsson hefur sungið Vetrarferðina margoft og meðal annars gefið hana út á plötu með Jónasi vini sínum Ingimundarsyni. Gagnrýnendur voru á því máli þegar Kristinn og Víkingur stilltu saman strengi sína í vor í Hörpu að þar hefði gerst eitthvert undur. Samvinna og samstilling þessa reynslubolta í söng af öllu tagi og hins unga píanósnillings hefði verið með ólíkindum. Svo vel tókst til, að minnsta kosti, að þeir félagar hafa verið hvattir til að hljóðrita þessa útgáfu sína á Vetrarferð Schuberts.