Kristján Björnsson gefur kost á sér til vígslubiskups á Hólum
-Ég vil byrja á því að óska sr. Agnesi M. Sigurðardóttur innilega til hamingju með afgerandi úrslit í kosningu til embættis biskups Íslands. Um leið vil ég staðfesta að ég gef kost á mér til embættis vígslubiskups á Hólum. Bréf mitt til kjörstjórnar setti ég í póst í Skagafirði í gær og legg málið í hendur kjörmanna og kirkjunnar fólks, segir Kristján Björnsson sóknarprestur í Vestmannaeyjum.
Með framboði sínu vill Kristján bjóða sig fram til stuðnings við kirkjulegt starf og þjónustu á öllum stöðum í umdæminu og enn frekari eflingar á Hólum. Þar vígðist hann 1989 og þjónaði í Vestur Húnavatnssýslu fyrstu níu árin, en hefur verið sóknarprestur í Vestmannaeyjum frá 1998.
-Það virkar vel á mig að embætti biskupanna er í deiglu innan kirkjunnar og það þarf að taka stöðu þeirra og hlutverk til umræðu.
Upplýsingar um framboð Kristjáns eru þegar aðgengilegar á heimasíðu hans kristjanbjornsson.wordpress.com