Kristján Jóhannsson á Skagaströnd
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
30.10.2013
kl. 09.26
Kristján Jóhannsson, óperusöngvari, heldur tónleika í Hólaneskirkju á Skagaströnd laugardaginn 9. nóvember 2013, kl. 20:30. Kristján, ásamt Jónasi Þóri, píanóleikara og Matthíasi Stefánssyni, fiðluleikara, flytur margar gullfallegar íslenskar og erlendar söngperlur.
Söngskráin verður mjög fjölbreytt, léttir og leikandi tónleikar við allra hæfi. Tónleikarnir eru í boði Minningarsjóðsins um hjónin frá Garði og Vindhæli.