Kröfu um heimasóttkví útflutningshrossa aflétt um áramót

Útflutningur hrossa hefur gengið vel í haust og hafa ríflega 1000 hross farið utan nú í byrjun desember eftir því sem fram kemur á heimasíðu Matvælastofnunar.  Þar sem lítið ber á hóstaveiki nú er kröfu um heimasóttkví útflutningshrossa aflétt um áramót.

Lönd Evrópusambandsins gera þær kröfur að hross sem þau taka við séu án sjúkdómseinkenna og það sama eigi við um öll hross sem þau hafi umgengist undangengna 30 daga (60 daga við flutning til Bandaríkjanna).

Vegna smitandi hósta var sett á, tímabundið, reglur um heimasóttkví útflutningshrossa til aða uppfylla framangreind skilyrði. Það fyrirkomulag hefur reynst afar vel og engar fregnir hafa borist um að veikin hafi komið upp í útfluttum hrossum. Aðeins örfá hross hafa ekki staðist heilbrigðisskoðanir og hefur útflutningi á þeim verið frestað.

Þar sem lítið ber á sjúkdómnum nú hefur verið ákveðið að aflétta hinni formlegu heimasóttkví frá áramótum, með þeim fyrirvara að sjúkdómurinn blossi ekki upp á ný.

Það verður áfram á ábyrgð seljenda að útflutningshross hafi ekki verið í samneyti við hross með einkenni smitandi hósta í a.m.k. einn mánuð (tvo fyrir Bandaríkin) fyrir útflutning.

Fleiri fréttir