Króksarar með afsláttarmiðavefsíðu
Miðar Vel ehf. var að fara í loftið með nýja vefsíðu í gær, kupon.is, þar sem hægt er að nálgast afsláttarmiða og tilboð í gegnum heimatölvuna, símann eða spjaldtölvuna. Miðar Vel ehf. er í eigu Króksaranna Einars Svan Gíslasonar og Guðmundar Ingva Einarssonar.
Að sögn þeirra Einars og Guðmundar hafa auglýsingar í formi afsláttarmiða ekki verið áberandi á Íslandi í gegnum tíðina en með kupon.is er ætlunin að nútímavæða þessa gamalgrónu hugmynd og staðfæra hana fyrir íslenskan markað. Þegar fréttin er skrifuð má finna glæsileg tilboð á ýmsum vörum á síðunni og vel þess virði að skoða hvort ekki sé eitthvað fyrir flesta. Sjá HÉR