KS-deildin 2015 hefst í kvöld
Þá er komið að fyrsta keppniskvöldi KS-Deildarinnar. Eins og áður fer keppnin fram í Svaðastaðahöllinni miðvikudaginn 11. febrúar og hefst kl.20.00. Keppt verður í fjórgangi. Keppnin er bæði einstaklings og liðakeppni. Spenna og tilhlökkun er fyrir þessu fyrsta kvöldi og menn farnir að spá í spilin.
Ekki er óeðlilegt að veðjað sé á Hugleik frá Galtanesi sem líklegan sigurvegara en hann mætir með nýjan knapa Valdimar Bergstað. Hugleikur hefur unnið fjórgangskeppnir meistaradeildarinnar fyrir sunnan síðastliðin tvö ár með Ólaf Ásgeirsson sem knapa. En ekki verður þetta baráttulaust fyrir Valdimar og Hugleik.
Lilja Pálmadóttir mætir með Móa frá Hjaltastöðum en Lilja og Mói voru í úrslitum á síðasta Íslandsmóti og hlutu í forkeppni sömu einkunn og Hugleikur 7,30.
Baldvin Ari kemur með Öngul frá Efri - Rauðalæk sem hefur náð 7,37 í fjórgangskeppni þótt hann sé lítt reyndur á þeim vettfangi. Bjarni Jónasson kemur með hinn farsæla Roða frá Garði sem hefur hlotið 7,20 í fjórgangi og Þórarinn Eymundsson og Taktur frá Varmalæk hafa einnig náð 7,20.
Líney Hjálmarsdóttir mætir með Völsung frá Húsavík en þau hlutu hvorki meira né minna en 7,70 á innanhúsmóti síðastliðinn vetur.
Hanna Rún og Nótt frá Sörlatungu hafa hlotið einkunn uppá 7,23 og svo eru þarna yngri hross sem náðu athyglisveðum árangri á síðasta ári. Gaman verður að fylgjast með
Mette Mannseth sem teflir fram Verdí frá Torfunesi í fyrsta skipti í íþróttakeppni en Verdí hefur hlotið 9 fyrir tölt, brokk og fyrir hægt stökk í kynbótadómi.
Aðgöngumiði gildir sem happdrætismiði og er í vinning folatollur í boði Íbishóls ehf. undir stórsnillinginn Snilling frá Íbishóli. Verð aðgöngumiða er kr.1500.
Þetta er kvöld sem enginn hestaunnandi ætti að láta fram hjá sér fara. Sýnt verður beint frá mótinu á netinu á gegn gjaldi (2000,-).
Það verður linkur inná heimasíðunni; http://www.svadastadir.is/ þar sem hægt verður að horfa. Einnig verða „lifandi“ niðurstöður inná Facebook síðu KS-Deildarinnar.
/Fréttatilkynning