Kuldi framundan
Fjöll eru víða komin með hvíta toppa og jafnvel er snjór allt niður fyrir miðjar hlíðar á Norðurlandi og má búast við að andi köldu norðanlands næstu daga. Veðurstofan gerir ráð fyrir norðan 8-13 m/s og slyddu eða snjókomu í dag og að það hvessi á morgun, 10-18 eftir hádegi, hvassast á Ströndum. Slydda, en síðar rigning. Hiti 0 til 3 stig, en 1 til 5 stig á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga.
Á miðvikudag:
Norðan 5-10, en norðaustan 10-15 m/s á Vestfjörðum. Skýjað en þurrt að kalla sunnanlands, en annars rigning og slydda til fjalla. Hiti 1 til 9 stig, hlýjast syðst.
Á fimmtudag:
Norðan 8-15 m/s, hvassast austast. Rigning eða slydda en snjókoma NA-til. Þurrt á S- og SV-landi. Dregur úr úrkomu þegar líður á daginn. Kólnar heldur.
Á föstudag:
Hæg breytileg átt og víða bjart veður, en norðvestanátt með lítilsháttar éljum við A-ströndina. Hiti 0 til 5 stig að deginum, en sums staðar vægt frost N- og A-lands.
Á laugardag:
Vaxandi suðlæg átt með rigningu, einkum S- og V-lands. Hlýnar í veðri.
Á sunnudag:
Útlit fyrir suðvestanátt en norðaustalæg átt NV-til. Víða skúrir en bjartviðri eystra.
Á mánudag:
Útlit fyrir norðlæga átt og skúri eða slydduél norðantil annars bjartviðri. Kólnar í veðri.