Kuldi í kortunum

Eflaust þykir íbúum Norðurlands vestra veðurfarið hálfhráslagalegt, þó ekki þurfti að kvarta miðið við ástandið eystra. Í dag eru allir vegir færir, en sem fyrr varað við vegskemmdum á Þverárfjallsvegi. Hiti er víðast hvar í kringum fjögur stig. Veðurstofan spáir norðan 8-13 m/s, skýjaðu og dálítilli rigningu eða slyddu við ströndina. Hægari og þurrt í kvöld. Hiti 2 til 7 stig, en vægt frost í nótt. Hæg breytileg átt og léttskýjað á morgun. Heldur hlýnandi. Þess má geta að framtíðarspáin hljóðar upp á hlýnandi veður.

Fleiri fréttir